Byrjendanámskeið fyrir dómara haldið hjá KA
Byrjendanámskeið fyrir dómara verður haldið hjá KA í KA-heimilinu fimmtudaginn 26. janúar kl. 16:45 Námskeiðið er haldið af KSÍ í samvinnu við KA.
Námskeiðið stendur í um tvær klukkustundir og er öllum opið sem náð hafa 15 ára aldri. Á námskeiðinu er lögð aðaláhersla á knattspyrnulögin en auk þess verður einnig farið yfir ýmis konar kynningarefni, fræðsluefni, skýringar og skýringarmyndir.
Námskeiðinu lýkur með skriflegu prófi. Námskeiðið er ókeypis. Sá sem lýkur unglingadómaraprófi hefur rétt á að dæma í 4. flokki og neðar ásamt því að vera aðstoðardómari upp í 2. flokk. 100% viðvera á námskeiði skilyrði.
Skráning er hafin á magnus@ksi.is