Súpufundur KSÍ - Yfirþjálfari ÍA fjallar um uppbyggingu félagsins
Miðvikudaginn 25. janúar kl. 12.00 mun Jón Þór Hauksson, yfirþjálfari yngri flokka ÍA, halda fyrirlestur í höfuðstöðvum KSÍ í Laugardalnum. Jón Þór mun fjalla um þjálfun leikmanna hjá ÍA, uppbyggingu félagsins og samstarf ÍA við Knattspyrnufélagið Kára á Akranesi.
Fyrirlesturinn veitir 2 endurmenntunarstig fyrir KSÍ A og KSÍ B þjálfaragráður.
Aðgangur er ókeypis, allir velkomnir og fundargestir fá súpu og brauð í boði KSÍ.