EM 2017 - Barnamiðar eru uppseldir
Miðasala á leiki Íslands á EM 2017 gengur vel. Barnamiðar eru uppseldir á leikina en það eru miðar sem voru seldir með 50% afslætti.
Hægt er að kaupa miða á leiki Íslands í verðsvæði 2 á fullu verði en þeir gilda jafnt fyrir börn sem fullorðna. Ennþá er fáanlegir miðar í verðsvæði 2 á leiki Íslands en 250 miðar eru til á leikinn gegn Frakklandi, 500 á leikinn gegn Sviss og 500 á leikinn gegn Austurríki.
Athygli er vakin á því að Icelandair býður upp á pakkaferðir á leiki riðlakeppninnar og eru ýmsar útfærslur í boði. Nánari upplýsingar má finna hér.Smelltu hérna til að fara á miðasöluna á Miði.is.