Aðalfundur KÞÍ er í kvöld, fimmtudag
Aðalfundur Knattspyrnuþjálfarafélags Íslands verður haldinn í fræðslusetri KSÍ á Laugardalsvelli, fimmtudaginn 8. desember n.k. klukkan 20:00.
Dagskrá:
- Fundarsetning
- Kosning fundarstjóra og fundarritara
- Skýrsla stjórnar
- Reikningar félagsins
- Lagabreytingar
- Kosning formanns, meðstjórnenda og varamanna skv. ákvæði 7. gr. laga
- Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga
- Ákvörðun um árgjald skv. 6. gr. laga
Önnur mál
- Veittar viðurkenningar fyrir þjálfara ársins í efstu deild karla og kvenna
- Veittar viðurkenningar fyrir vel unnin störf við þjálfun yngri flokka
Léttar veitingar
Stjórn KÞÍ hvetur félagsmenn sína til að mæta.