U17 karla - Ísland leikur við Armeníu í dag, sunnudag
Ísland leikur lokaleik sinn í undankeppni EM U17 karla í dag en leikið er í Ísrael. Leikurinn er gegn Armeníu en Ísland getur ekki tryggt sér sæti í milliriðli eftir tvö töp.
Ísland tapaði 2-0 gegn Ísrael og 2-0 gegn Póllandi og er á botni riðilsins án stiga. Armenía er hinsvegar með 1 stig.
Leikurinn hefst klukkan 15:00 og er hægt er að fylgjast með leiknum í textalýsingu á vef UEFA.