Ísland í 3. styrkleikaflokki þegar dregið verður 8. nóvember
Þann 8. nóvember næstkomandi verður dregið í úrslitakeppni EM kvenna 2017 og þar verður Ísland að sjálfsögðu í pottinum. Ísland verður í þriðja styrkleikaflokki ásamt Ítalíu, Skotlandi og Danmörku og getur því ekki dregist gegn einhverri af þeim þjóðum.
Ein þjóð úr hverjum flokki verður í hverjum riðli en ljóst er að gestgjafar Hollands verða í A riðli.
Styrkleikaflokkarnir eru eftirfarandi:
- Flokkur 1: Holland, Þýskaland, Frakkland, England
- Flokkur 2: Noregur, Svíþjóð, Spánn, Sviss
- Flokkur 3: Ítalía, Ísland, Skotland, Danmörk
- Flokkur 4: Austurríki, Belgía, Rússland, Portúgal
Leikstaðir verða eftirfarandi:
- Breda
- Deventer
- Doetinchem
- Enschede
- Rotterdam
- Tilburg
- Utrecht
Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu UEFA.