Gunnar Jarl dæmir á Spáni í undankeppni U21 karla
Gunnar Jarl Jónsson verður í eldlínunni í kvöld þegar hann dæmir leik Spánar og Eistlands í undankeppni EM hjá U21 karla. Leikið verður í Pontevedra á Spáni og Gunnari til aðstoðar verða þeir Birkir Sigurðarson og Gylfi Már Sigurðsson. Varadómari verður Ívar Orri Kristjánsson.
Leikurinn hefur mikla þýðingu í riðlinum þar sem Spánverjar etja kappi við Svía og Króata um toppsætið í riðlinum. Svíar eru í efsta sæti með 21 stig en Spánn og Króatía eru með 20 stig. Svíþjóð og Króatía mætast í hinum leik riðilsins í kvöld.