Ísland tekur á móti Tyrklandi í kvöld - Byrjunarlið
Ísland tekur á móti Tyrklandi í kvöld í undankeppni HM en leikið verður á Laugardalsvelli kl. 18:45. Uppselt er á leikinn og eru vallargestir hvattir til þess að mæta tímanlega á völlinn til að losna við örtröð en hlið Laugardalsvallar ljúkast upp kl. 17:30.
Ísland vann á fimmtudaginn 3-2 sigur á Finnum og er með 4 stig í riðlinum ásamt Króatíu. Einn leikmaður Íslands tekur út leikbann í kvöld en það er fyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson sem hefur fengið tvö gul spjöld í undankeppninni.
Áfram Ísland!
Smelltu hérna til að skoða leikskrá fyrir leikinn.
Smelltu hérna til að skoða stöðuna í riðlinum.