U19 karla - Svekkjandi tap gegn Tyrkjum
Strákarnir í U19 biðu lægri hlut gegn Tyrkjum í dag í undankeppni EM en riðillinn er leikinn í Úkraínu. Lokatölur urðu 2 - 1 fyrir Tyrki sem leiddu, 1 - 0 í leikhléi. Axel Andrésson jafnaði metin í seinni hálfleik, með marki eftir hornspyrnu.
Tyrkir fengu einnig vítaspyrnu í seinni hálfleik en Daði Freyr Arnarsson varði spyrnuna glæsilega. Tyrkir skoruðu svo sigurmarkið á 82. mínútu en fyrra mark þeirra kom á 10. mínútu leiksins.
Strákarnir mæta Lettum í síðastu umferðinni á þriðjudaginn en Lettar biðu lægri hlut gegn Úkraínu í dag, 3 - 0.