Uppselt á leik Íslands og Tyrklands
Uppselt er á leik Íslands og Tyrklands í undankeppni HM sem fram fer sunnudaginn 9. október á Laugardalsvelli. Um 1100 miðar fóru í sölu í gær en um var m.a. að ræða miða sem Tyrkir nýttu sér ekki. Miðarnir seldust upp í gærkvöldi.
Ef fleiri miðum verður skilað til KSÍ verða þeir seldir á leikdag í miðasölunni á Laugardalsvelli og á það bæði við um Tyrkjaleikinn, sunnudaginn 9. október sem og á leikinn gegn Finnum sem fram fer fimmtudaginn 6. október. Báðir leikirnir hefjast kl. 18:45.