Ísland - Tyrkland: 1104 miðar fara í sölu þriðjudaginn 4. október
Miðar á leik Íslands og Tyrklands í undankeppni HM 2018, fara í sölu þriðjudaginn 4. október og hefst kl. 12:00 á hádegi. Um er að ræða miða, 1104 talsins, sem m.a. voru teknir frá fyrir stuðningsmenn Tyrkja. Miðarnir sem fara í sölu eru í aðallega í hólfum: B, J, K og T. Einnig eru nokkrir miðar lausir í annars staðar þó í minna magni en í fyrrgreindum hólfum.
Miðasalan fer fram, sem fyrr, í gegnum miðasölukerfi hjá www.midi.is.
Leikurinn fer fram á Laugardalsvelli, sunnudaginn 9. október og hefst kl. 18:45.
Verð:
- Rautt svæði - 7.000 krónur
- Blátt svæði - 5.000 krónur
- Grænt svæði - 3.000 krónur