Hæfileikamót N1 og KSÍ stúlkna 2016
Hæfileikamót KSÍ og N1 2016 – Stúlkur Fer fram í Kórnum dagana 30 . september. - 2 . október .
Hæfileikamót KSÍ og N1 stúlkna fer fram í Kórnum í Kópavogi dagana 30. sep. – 2. okt. Mótið fer fram undir stjórn Halldórs Björnssonar og hér að neðan má sjá nafnalista þeirra leikmanna sem boðaðir eru til leiks.
Undanfarið hefur Halldór Björnsson ferðast um landið með Hæfileikamótun KSÍ og N1 og er þetta mót framhald af þeirri vinnu. Um er að ræða leikmenn sem eru í 4. flokki, 13 til 14 ára, og hafa þeir mætt á æfingar og fengið annan fróðleik í gegnum Hæfileikamótun KSÍ og N1.
Ljósmyndari og tökumaður frá N1 mæta á staðinn og taka skemmtilegar myndir og myndbönd frá mótinu.
Dagskráin hefst á föstudeginum í KSÍ Laugardal, mótið hefst svo kl. 15:00 laugardeginum í Kórnum í Kópavogi og leikið er svo frá kl. 13:30 á sunnudeginum. Aðstandendur leikmanna, þjálfarar og aðrir eru velkomnir að koma og fylgjast með leikjunum úr stúkunni í Kórnum.
- Dagskrá:
- Föstudagur 30. sep. Fundur/Fyrirlestur KSÍ Laugardal 18:00 til 20:00
- Laugardagur 1. okt. Hæfileikamót Kórinn 15:00 til 20:00
- Sunnudagur 2. okt. Hæfileikamót Kórinn 13:30 til 18:30
KSÍ greiðir kostnað við flug leikmanna til Reykjavíkur. Fyrir þá sem þurfa að panta flug með Flugfélagi Íslands, vinsamlegast hafið sambandi við hópadeildina í síma 570 3075 til að bóka flug. Athugið að óska eftir ÍSÍ fargjaldi.
Nánari upplýsingar veitir Halldór Björnsson – halldorb@ksi.is
Vinsamlega afhendið leikmönnum ykkar afrit af þessu bréfi. Öll forföll skal tilkynna til skrifstofu KSÍ í síma 510-2900 eða með tölvupósti til halldorb@ksi.is Mikilvægt er að leikmenn mæti hvorki meiddir né veikir á æfingar og láti vita eins fljótt og kostur er