Dómarinn sem dæmdi úrslitaleik Meistaradeildarinnar dæmir leikinn gegn Skotlandi
Ísland mætir Skotlandi í lokaleik Íslands í undankeppni EM en leikurinn fer fram á Laugardalvelli, klukkan 17:00 á morgun, þriðjudag. Dómari leiksins er hin ungverska Katalin Kulcsar, reynslumikill dómari sem m.a. dæmdi úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu kvenna í ár.
Úrslitaleikurinn var viðureign Wolfsburg og Olympique Lyonnais en leikurinn endaði í vítaspyrnukeppni og var æsispennandi frá upphafi til enda. Þótti Kulcsar komast vel frá sínu í leiknum.
- Dómari: Katalin Kulcsar
- Aðstoðardómari: Andrea Hima
- Aðstoðardómari: Katalin Emese Torok
- 4. dómari: Rúna Kristín Stefánsdóttir