U21 karla - Nýir leikstaðir
Strákarnir í U21 landsliðinu munu leika síðustu tvo leiki sína í undankeppni fyrir EM 2017 í október. Fyrri leikurinn, sem er á móti Skotum verður á Víkingsvelli miðvikudaginn 5. október kl. 15.30. Síðari leikurinn er á móti Úkraínu á Laugardalsvelli, þriðjudaginn 11. október kl. 16.45.
Ísland er ennþá í góðri stöðu í riðlinum og getur tryggt sér sæti í úrslitakeppni EM 2017 með sigri í síðustu tveimur leikjum sínum. Það er því mikið undir og verður spennandi að fylgjast með þessum leikjum.