A kvenna - Hópurinn sem mætir Slóvenum og Skotum
Freyr Alexanderson, landsliðsþjálfari, hefur valið hópinn sem mætir Slóvenum og Skotum í undankeppni EM en þetta eru lokaleikir Íslands í undankeppninni. Leikið verður gegn Slóvenum, 16. september og gegn Skotum 20. september og fara báðir leikirnir fram á Laugardalsvelli.
Stelpurnar okkar stefna ótrauðar beint í lokakeppnina og þurfa góðan stuðning á leikjunum sem eftir eru. Miðasala á leikina er hafin á www.miði.is en boðið er upp á að kaupa miða á staka leiki en einnig tvíhöfða á sérstöku tilboðsverði eða 3500 krónur fyrir báða leikina.
Takmarkaður miðafjöldi er í boði en mikill áhugi er á þessum úrslitaleikjum kvennalandsliðsins.
Við hvetjum alla að fjölmenna á báða leikina og styðja við bakið á stelpunum okkar á troðfullum Laugardalsvelli.
Smelltu hérna til að fara á miðasöluna.