U19 kvenna - Hópurinn valinn fyrir undankeppni EM
Þórður Þórðarson, landsliðsþjálfari U19 kvenna, hefur valið hópinn sem leikur í riðli Íslands í undankeppni EM. Riðillinn verður leikinn í Finnlandi, dagana 15. - 20. september. Auk heimastúlkna leikur Ísland gegn Færeyjum og Kasakstan.
Efsta þjóðin í riðlinum mun tryggja sér sæti í milliriðlum ásamt 10 þjóðum, úr 11 riðlum, sem lenda í öðru sæti og verður spennandi að fylgjast með stelpunum í undankeppninni.