Þorvaldur dæmir í undankeppni U21 landsliða
Þorvaldur Árnason mun dæma leik Íra og Slóvena í undankeppni U21 EM karlalandsliða en leikið verður í Waterford, 2. september næstkomandi. Þorvaldi til aðstoðar verða þeir Jóhann Gunnar Guðmundsson og Gunnar Sverrir Gunnarsson og fjórði dómari verður Ívar Orri Kristjánsson.