Þóroddur dæmir í Horsens
Þóroddur Hjaltalín mun í kvöld dæma vináttulandsleik Danmerkur og Liechtenstein en leikið verður í Horsens. Þóroddi til aðstoðar verða þeir Frosti Viðar Gunnarsson og Birkir Sigurðarson en fjórði dómari er heimamaður.
Leikurinn er undirbúningur þessara þjóða fyrir fyrstu leikina í undankeppni HM í næstu viku en þar taka Danir á móti Armenum en Liechtenstein sækir Spánverja heim.