A karla – Miðasala á leik Íslands og Tyrklands hefst föstudaginn 2. september
Miðasala á leik Íslands og Tyrklands í undankeppni HM hefst föstudaginn 2. september kl. 12:00 á hádegi. Leikurinn fer fram sunnudaginn 9. október á Laugardalsvelli kl. 18:45 og fer miðasalan fram í gegnum miðasölukerfi hjá www.midi.is.
Eins og undanfarin ár verður boðið upp á barnaverð fyrir 16 ára og yngri sem er 50% af fullu miðaverði. Hægt er að velja barnaverð í kaupferlinu.
Verð:
- Rautt svæði - 7.000 krónur
- Blátt svæði - 5.000 krónur
- Grænt svæði - 3.000 krónur