A kvenna - Miðasala á lokaleiki undankeppni EM er hafin
Kvennalandsliðið leikur lokaleiki sína í undankeppni EM í september en þá ræðst hvort liðið tryggi sér farseðil á lokakeppni EM í Hollandi. Íslenska liðið er í góðri stöðu á toppi riðilsins en seinustu leikirnir eru gegn Slóveníu þann 16. september og Skotlandi þann 20. september.
Stelpurnar okkar stefna ótrauðar beint í lokakeppnina og þurfa góðan stuðning á leikjunum sem eftir eru. Miðasala á leikina hefst á morgun, föstudag, á miði.is en boðið verður upp á að kaupa miða á staka leiki en einnig tvíhöfða á sérstöku tilboðsverði eða 3500 krónur fyrir báða leikina.
Takmarkaður miðafjöldi er í boði en mikill áhugi er á þessum úrslitaleikjum kvennalandsliðsins.
Við hvetjum alla að fjölmenna á báða leikina og styðja við bakið á stelpunum okkar á troðfullum Laugardalsvelli.
Smelltu hérna til að fara á miðasöluna.
Áfram Ísland.