Mótsmiðasala fyrir undankeppni HM hefst á miðvikudaginn
Líkt og fyrir síðustu undankeppni EM karla verður nú hægt að kaupa mótsmiða á undankeppni HM karla sem hefst í september. Mótsmiði gildir á alla heimaleiki Íslands í undankeppni HM.
Sala mótsmiða fer fram á www.midi.is og hefst miðvikudaginn 17. ágúst kl. 12:00.
Eftir frábæran árangur í lokakeppni EM í sumar er áhugi á mótsmiðum mikill en framboð miða takmarkað. Einungis verða um 1000 miðar seldir í mótsmiðasölu sem er um 10% af sætaframboði vallarins.
Fyrsti heimaleikur Íslands í undankeppninni verður á Laugardalsvelli fimmtudaginn 6. október gegn Finnlandi. Aðrir heimaleikir Íslands í undankeppninni eru:
- 9. október Ísland-Tyrkland
- 11. júní Ísland-Króatía
- 5. september Ísland-Úkraína
- 9. október Ísland-Kosóvó
Hægt er að kaupa mótsmiða í þrjú svæði og þar með í þremur verðflokkum eins og áður. Ekki er hægt að velja sæti í kaupferlinu en mótsmiðahafi fær sama sæti úthlutað í öllum heimaleikjunum. Þetta er m.a. gert til að tryggja hámarksnýtingu á vellinum og er það sama aðferð og UEFA notaði í úrslitakeppni EM.
Seldir verða rúmlega 300 miðar í hvert af þessum þremur svæðum, eða um 1000 miðar alls, sem er um 10% af sætaframboði vallarins. Mest er hægt að kaupa fjóra mótsmiða á hverja kennitölu.
- Miðaverð – mótsmiðar
- Svæði I 35.000.- kr. (Rautt svæði)
- Svæði II 25.000 kr. (Blátt svæði)
- Svæði III 15.000 kr. (Grænt svæði)