Hæfileikamótun KSÍ og N1 – Suðurland
Hæfileikamótun KSÍ og N1 fer fram á Hvolsvelli þriðjudaginn 16 ágúst.
Æfingarnar eru fyrir bæði stelpur og stráka. Það er Halldór Björnsson sem fer fyrir verkefninu.
Dagskrá heimsóknar á Suðurland
- Þriðjudagurinn 16 ágúst.
- 15:30 - Æfing með stúlkum
- 17:00 - Æfing með drengjum
Helstu markmið hæfileikamótunar KSÍ eru að:
- Fjölga þeim leikmönnum sem fylgst er með.
- Fylgjast með yngri leikmönnum en áður og undirbúa þá fyrir hefðbundnar landsliðsæfingar.
- Koma til móts við minni staði á landsbyggðinni og mæta þeirra þörfum.
- Koma til móts við leikmenn stærri félaga á höfuðborgarsvæðinu sem að öllu jöfnu væru ekki valdir á landsliðsæfingar.
- Bæta samskipti við aðildarfélögin og kynna fyrir þeim stefnu KSÍ í landsliðsmálum.
- Undirbúa leikmenn enn betur til þess að mæta á landsliðsæfingar seinna með fræðslu.