Erlendur dæmir úrslitaleik Borgunarbikars kvenna
Erlendur Eiríksson verður dómari á bikarúrslitaleik Breiðabliks og ÍBV í Borgunarbikar kvenna en leikurinn er klukkan 19:5 í kvöld, föstudag.
Erlendur er með reynslumeiri dómurum landsins en með honum dæma Rúna Kristín Stefánsdóttir, Andri Vigfússon og Bríet Bragadóttir verður varadómari.
Dómarar á úrslitaleik kvenna, Breiðablik - ÍBV:
Dómari: Erlendur Eiríksson
Aðstoðardómari 1: Rúna Kristín Stefánsdóttir
Aðstoðardómari 2: Andri Vigfússon
Varadómari: Bríet Bragadóttir