Norskir dómarar dæma leik Hauka og Þórs í Inkasso-deildinni
Norski dómarinn Torkjell Traedal mun dæma leik Hauka og Þórs í Inkasso-deildinni sem fram fer á Ásvöllum, fimmtudaginn 11. ágúst.
Samlandi hans, Thomas Skaiaa, mun verða honum til aðstoðar.
Þetta verkefni er hluti af verkefni norrænu knattspyrnusambandanna um dómaraskipti.