U17 karla - Ísland vann silfrið á opna Norðurlandamótinu
U17 ára lið karla hampaði silfrinu á opna Norðurlandamótinu sem fram fór í Finnlandi. Danmörk vann úrslitaleikinn 2-0 en bæði mörk leiksins komu í upphafi leiksins.
Ísland endaði því í 2. sæti á mótinu sem er frábær árangur en ísland vann sigra á Svíum og Færeyingum en liðið tapaði gegn Svartfjallalandi.