U17 karla - Ísland leikur til úrslita í dag á opna Norðurlandamótinu
U17 ára landslið karla leikur í dag úrslitaleikinn á opna Norðurlandamótinu sem fram fer í Finnlandi. Mótherjar Íslands í leiknum eru Danir.
Ísland vann sigra á Svíum og Færeyingum en tapaði gegn Svartfjallalandi í riðlakeppninni. Leikurinn hefst klukkan 16:00.
Helstu atvik leiksins munu koma á Facebook-síðu KSÍ.