Hæfileikamótun KSÍ og N1 fyrir stúlkur á höfuðborgarsvæðinu
Halldór Björnsson, yfirmaður hæfileikamótunar, mun vera með æfingar laugardaginn 13. ágúst fyrir stúlkur á höfuðborgarsvæðinu, fæddar 2002.
Æfingar verða á grasvelli við Kórinn í Kópavogi.
- Laugardagurinn 13. ágúst
- Æfing kl.9:30
- Leikmenn frá: Aftureldingu, Breiðabliki, FH, Gróttu, Haukum, HK, KR og Stjörnunni.
- Æfing kl.11:00
- Leikmenn frá: Fjölni, Fram, Fylki, ÍR, Leikni, Val, Víkingi og Þrótti.
Helstu markmið hæfileikamótunar KSÍ eru að:
- Fjölga þeim leikmönnum sem fylgst er með.
- Fylgjast með yngri leikmönnum en áður og undirbúa þá fyrir hefðbundnar landsliðsæfingar.
- Koma til móts við minni staði á landsbyggðinni og mæta þeirra þörfum.
- Koma til móts við leikmenn stærri félaga á höfuðborgarsvæðinu sem að öllu jöfnu væru ekki valdir á landsliðsæfingar.
- Bæta samskipti við aðildarfélögin og kynna fyrir þeim stefnu KSÍ í landsliðsmálum.
- Undirbúa leikmenn enn betur til þess að mæta á landsliðsæfingar seinna með fræðslu.