Hæfileikamótun KSÍ og N1 – Norðurland
Hæfileikamótun KSÍ og N1 fer fram á Dalvík þriðjudaginn 19.júlí. Æfingarnar eru fyrir bæði stelpur og stráka. Það er Halldór Björnsson sem fer fyrir verkefninu.
- Dagskrá heimsóknar á Norðurland
- Þriðjudagurinn 19. júlí
- 13:00 - Æfing með stúlkum
- 14:30 - Æfing með drengjum
Helstu markmið hæfileikamótunar KSÍ eru að:
- Fjölga þeim leikmönnum sem fylgst er með.
- Fylgjast með yngri leikmönnum en áður og undirbúa þá fyrir hefðbundnar landsliðsæfingar.
- Koma til móts við minni staði á landsbyggðinni og mæta þeirra þörfum.
- Koma til móts við leikmenn stærri félaga á höfuðborgarsvæðinu sem að öllu jöfnu væru ekki valdir á landsliðsæfingar.
- Bæta samskipti við aðildarfélögin og kynna fyrir þeim stefnu KSÍ í landsliðsmálum.
- Undirbúa leikmenn enn betur til þess að mæta á landsliðsæfingar seinna með fræðslu.