Birkir Sigurðsson aðstoðardómari í leik Portúgals og Austurríkis
Birkir Sigurðsson er aðstoðardómari í leik Portúgals og Austurríkis á lokakeppni EM U19 ára karla sem fram fer í Þýskalandi. Leikurinn fer fram á morgun, mánudag.
Birkir Sigurðarson verður einn af aðstoðardómurum í úrslitakeppni U19 karla en keppnin fer fram í Þýskalandi, 11. - 24. júlí. Birkir er einn af 8 aðstoðardómurum í keppninni.
Aðrar þjóðir í keppninni eru: Portúgal, Austurríki, England, Holland, Króatía og Frakkland.