Úrskurður í máli HK/Víkings gegn Breiðablik/Augnablik
Á fundi sínum 21. júní síðastliðinn tók Aga- og úrskurðarnefnd fyrir mál HK/Víkings gegn Breiðabliki/Augnabliki vegna leik liðanna í 2. flokki kvenna. Kærandi taldi kærða hafa teflt fram ólöglega skipuðu liði.
Í úrskurðarorðum segir:
"Úrslit í leik HK/Víkings og Breiðablik/Augnabliks í Íslandsmóti 2. flokks kvenna A sem fram fór þann 6. júní 2016 er breytt þannig að leikurinn dæmist Breiðablik/Augnabliki tapaður með markatölunni 0-3. Breiðablik/Augnablik greiði sekt að fjárhæð kr. 25.000 til KSÍ."