Ísland upp um fimm sæti á heimslista FIFA
Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu fer upp um fjögur sæti á heimslista FIFA sem gefinn var út í morgun og hækkar sig um fjögur sæti frá því listinn var síðast gefinn út.
Sviss og Ísland eru þær tvær þjóðir sem taka stærstu stökkin á listanum sem annars breytist mjög lítið frá því síðast. Ísland er komið í 16. sætið en var í 20. sæti og Sviss fer úr nítjánda sætinu í það fimmtánda.
Efstu liðin á heimslista FIFA:
1. Bandaríkin
2. Þýskaland
3. Frakkland
4. England
5. Ástralía
6. Svíþjóð
7. Japan
8. Brasilía
9. Norður-Kórea
10. Kanada
11. Noregur
12. Kína
13. Holland
14. Spánn
15. Sviss
16. ÍSLAND
17. Nýja-Sjáland
18. Ítalía
19. Suður-Kórea
20. Danmörk