A kvenna - Ísland mætir Makedóníu í kvöld
Ísland og Makedónía mætast í kvöld í undankeppni EM kvenna og hefst leikurinn á Laugardalsvelli kl. 19:30. Miðasala á leikinn er í fullum gangi í gegnum miðasölukerfi hjá miði.is og þá hefst miðasala á Laugardalsvelli kl. 12:00.
Leikurinn er gríðarlega mikilvægur fyrir stelpurnar okkar og með sigri gegn Makedóníu stígur liðið risaskref áleiðis í úrslitakeppnina í Hollandi. Það stefnir í góða aðsókn á leikinn í kvöld, við frábærar aðstæður, og góður stuðningur getur skipt sköpum. Mætum á völlinn og látum vel í okkur heyra.