Vilhjálmur dæmir leik Spánar og Georgíu
Vilhjálmur Alvar Þórarinsson verður í eldlínunni á morgun, þriðjudaginn 7. júní, þegar hann dæmir vináttulandsleik Spánar og Georgíu. Leikið verður í Getafe og er þetta síðasti leikur Spánar fyrir úrslitakeppni EM í Frakklandi.
Vilhjálmi til aðstoðar í leiknum verða þeir Gylfi Már Sigurðsson og Gunnar Sverrir Gunnarsson en fjórði dómari er heimamaður, Juan Martinez Munuera.