Sex sinnum áður mætt Liechtenstein
A landslið karla mætir sem kunnugt er Liechtenstein í vináttulandsleik á Laugardalsvellinum á mánudag. Þetta er síðasti heimaleikur íslenska liðsins áður en það heldur til Frakklands til að leika í úrslitakeppni EM 2016. Þessar þjóðir hafa 6 sinnum áður mæst. Síðustu tvær viðureignirnar hafa verið vináttuleikir, en hinar fjórar þar á undan voru allt mótsleikir.
Ísland hefur unnið 3 sigra, tvisvar sinnum hafa liðin gert jafntefli, og Liechtenstein hefur unnið einu sinni. Markatalan í viðureignunum sex er 12-5, Íslandi í hag.