A kvenna - Dagný komin til Falkirk
Allur hópurinn er nú kominn saman í Falkirk en Dagný Brynjarsdóttir kom til móts við hópinn í dag. Dagný var að leika með félagsliði sínu í Bandaríkjunum á sunnudagskvöld og ferðalag frá vesturströnd Bandaríkjanna tekur sinn tíma. Tveir leikmenn úr skoska hópnum voru samferða henni en Dagný mætti þeim einmitt á sunnudagskvöldið þegar Portland Thorns og Seattle Reign gerðu markalaust jafntefli í NWSL deildinni. Þetta eru miðvörðurinn Rachel Corsie og miðjumaðurinn Kim Little. Dagný átti þó nokkuð í höggi við Rachel í leiknum en sú sunnlenska lék sem framherji í þessum leik.
Dagný náði þó ekki æfingu dagsins en verður klár í slaginn á morgun þegar æft verður tvisvar sinnum. Aðstæður eru hinar ákjósanlegustu hér í Falkirk, veðrið leikur við heimamenn og gesti þeirra. Sólin lætur mikið fyrir sér fara og hitinn er um 18 stig. Allar æfingarnar fara fram á gervigrasi enda verður leikið á gervigraslögðum Falkirk velli á föstudaginn.