Undankeppni HM 2018: Leikið fyrir luktum dyrum í Úkraínu og Króatíu
Ljóst er að ekki verða margir áhorfendur á fyrstu útileikjum A landsliðs karla í undankeppni HM 2018 sem hefst í september næstkomandi. FIFA hefur tilkynnt að fyrstu heimaleikir Úkraínu og Króatíu í keppninni verði leiknir fyrir luktum dyrum vegna hegðunar stuðningsmanna í vináttuleikjum fyrr á árinu.
Fyrsti heimaleikur Úkraínu er 5. september gegn Íslandi. Króatar þurfa reyndar að leika fyrstu tvo heimaleiki sína fyrir luktum dyrum, fyrst gegn Tyrklandi sama dag og Ísland leikur í Úkraínu, og svo aftur gegn Íslendingum 12. nóvember. Í millitíðinni leikur íslenska liðið tvo heimaleiki - gegn Finnum og Tyrkjum.