A kvenna - Stelpurnar komnar til Falkirk
Kvennalandsliðið er komið til Skotlands, nánar tiltekið til Falkirk, en þar verður leikið við Skota í undankeppni EM, föstudaginn 3. júní. Fyrsta æfing hópsins var í dag og tóku allir leikmenn þátt í henni að undanskildri Dagnýju Brynjarsdóttur, serm kemur til móts við hópinn á morgun.
Æfingin í dag var létt og leikandi og snerist fyrst og fremst um að ná ferðalaginu úr leikmönnum sem að fleistir léku með félagsliðum sínum annað hvort í gær eða fyrradag. Æfingin í dag fór fram á gervigrasi eins og aðrar æfingar í þessari ferð en leikði verður á gervigrasi á Falkirk vellinum á föstudaginn.
Skotar eru sem kunnugt er í efsta sæti riðilsins, hafa unnið alla sína leiki, eins og íslenska liðið en Skotar hafa leikið einum leik meira. Þetta verður síðasti heimaleikur Skota í riðlinum en árangur þeirra á heimavelli hefur verið mjög sannfærandi, hafa skorað 20 mörk en fengið einungis á sig eitt. Þetta verður að sama skapi síðasti útileikur Íslands í riðlinum en næsti heimaleikur er gegn Makedóníu, á Laugardalsvelli, þriðjudaginn 7. júní kl. 19:30 og er miðasala á leikinn í fullum gangi.