Hæfileikamótun KSÍ og N1 fyrir Austurland
Hæfileikamótun KSÍ og N1 fyrir Austurland verður á Egilsstöðum laugardaginn 28.maí og eru þetta æfingar fyrir krakka í 4. flokki. Það er Halldór Björnsson sem fer fyrir verkefninu.
Dagskrá heimsóknar á Austurland:
- Laugardagurinn 28. maí.
- 16:15 - Æfing með drengjum
- 17:45 - Æfing með stúlkum
Helstu markmið hæfileikamótunar KSÍ eru að:
- Fjölga þeim leikmönnum sem fylgst er með.
- Fylgjast með yngri leikmönnum en áður og undirbúa þá fyrir hefðbundnar landsliðsæfingar.
- Koma til móts við minni staði á landsbyggðinni og mæta þeirra þörfum.
- Koma til móts við leikmenn stærri félaga á höfuðborgarsvæðinu sem að öllu jöfnu væru ekki valdir á landsliðsæfingar.
- Bæta samskipti við aðildarfélögin og kynna fyrir þeim stefnu KSÍ í landsliðsmálum.
- Undirbúa leikmenn enn betur til þess að mæta á landsliðsæfingar seinna með fræðslu