Hvernig er að vera hinsegin íþróttamanneskja á Íslandi í dag?
Miðvikudaginn 25. maí verður haldinn opinn hádegisfundur (kl. 12:00-13:00) í sal E í Íþróttamiðstöð ÍSÍ í Laugardal.
Viðfangsefnið er - Hvernig er að vera hinsegin íþróttamanneskja á Íslandi í dag?
María Helga Guðmundsdóttir, landsliðskona í karate, íþróttaþjálfari og jafningjafræðari á vegum Samtakanna '78, fjallar um stöðu hinsegin fólks í íþróttum og leiðir til að stuðla að því að allt íþróttafólk geti hámarkað árangur og ánægju í íþróttaheiminum.
Í fyrirlestrinum verður ýmsum umræðuefnum velt upp: Hvað er kynjakerfið og hvernig hefur það áhrif á íþróttamenningu? Hvað þýða hugtök eins og intersex og kynsegin? Hvernig birtast fordómar á grundvelli kynhneigðar, kynvitundar og kyneinkenna í íþróttum? Hvaða reglur gilda um þátttöku trans og intersex fólks í kynjaskiptum keppnisíþróttum? Og hvað er hægt að gera sem þjálfari eða liðsfélagi til að styðja hinsegin fólk í íþróttum og stuðla að opnu og fordómalausu umhverfi?
Tengill á viðburðinn á Facebook:
https://www.facebook.com/events/1152023184849952/
Tengill til að skrá sig á fundinn: