Hvað má skipta mörgum leikmönnum inn á?
Skrifstofa KSÍ og ekki síður dómarar leikja fá mjög reglulega fyrirspurnir um það hversu mörgum leikmönnum má skipta inn á í einum leik. Svarið er hins vegar ekki það sama í öllum tilfellum, því það skiptir máli í hvaða móti og hvaða aldursflokki er leikið.
Í meistaraflokki eru almennt leyfðar 3 skiptingar í leik og á það við um allar deildir Íslandsmóts meistaraflokks, nema 1. deild kvenna, 3. deild karla og 4. deild karla. Félög sem leika í þessum deildum þurfa þó að hafa það í huga þegar þau leika í Borgunarbikarnum að í því móti eru einungis leyfðar þrjár skiptingar, jafnvel þó um sé að ræða innbyrðis bikar-viðureign milli tveggja liða í viðkomandi deild.
Rétt er að geta þess að í meistaraflokki er heimilt að hafa 18 leikmenn í leikmanna hópi. Í 11 manna bolta í yngri flokkum er heimilt að hafa 16 leikmenn í hóp, og í 7 manna bolta er heimilt að hafa 12 leikmenn.
Yfirlit leyfilegra skiptinga má sjá í töflunni hér að neðan.
Flokkur | Leyfilegar skiptingar |
Meistaraflokkur | 3 |
1. deild kv. / 3. og 4. deild ka. | 5 |
2. flokkur | 5 |
2. flokkur 7 | 5 (Frjálsar)** |
3. flokkur | 5 |
3. flokkur 7 | 5 (Frjálsar)** |
4. flokkur | 5 (Frjálsar)** |
4. flokkur 7 | 5 (Frjálsar)** |
5. flokkur | 5 (Frjálsar)** |
6. flokkur | 5 (Frjálsar)** |
Eldri flokkur karla | 5 (Frjálsar)** |
** Ekki þarf að tilkynna dómara um skiptinguna. Leikmaður sem hefur verið skipt út af má ganga til leiks á ný. |