U17 kvenna - Heimastúlkur sterkari í lokaleiknum
Stelpurnar í U17 luku í dag leik í milliriðli EM en hann fór fram í Serbíu að þessu sinni. Leikið var gegn heimastúlkum í dag sem höfðu öruggan sigur, 5 - 1. Íslenska liðið hafnaði því í þriðja sæti riðilsins, á eftir Englendingum og Serbum en á undan Belgum.
Heimastúlkur byrjuðu af krafti og komust yfir eftir aðeins þriggja mínútna leik. Jafnræði var svo nokkuð í leiknum en tvo mörk Serba á 31. og 39. mínútu gerðu þetta að mjög brattri brekku fyrir okkar stúlkur og þriggja marka munur í leikhléi.
Serbar bættu við tveimur mörkum í seinni hálfleik áður en Agla María Albertsdóttir minnkaði muninn en þar við sat.
Sem fyrr segir þá hafa íslensku stelpurnar lokið keppni að þessu sinni en liðið vann Belga í fyrsta leik en tapaði gegn Englandi og Serbíu. Þriðja sætið staðreynd en England hefur tryggt sér farseðil í úrslitakeppninni og Serbar eygja ennþá von um að komast með bestan árangur í öðru sæti riðlanna.