U17 kvenna mætir Serbíu á þriðjudag
U17 landslið kvenna mætir Serbum á þriðjudag í lokaumferð milliriðils fyrir úrslitakeppni EM, en leikstaðurinn er einmitt Serbía. Þetta er úrslitaleikur um annað sæti riðilsins og á sama tíma leika Englendingar og Belgar, en þær fyrrnefndu hafa þegar tryggt sér sæti í úrslitakeppninni.
Báðir leikirnir hefjast kl. 12:00 að íslenskum tíma og er hægt að fylgjast með gangi mála á vef UEFA, þar sem byrjunarliðin birtast, sem og textalýsing frá leiknum.
Efsta lið hvers milliriðils fer í úrslitakeppnina, ásamt liðinu með bestan árangur í 2. sæti og gestgjafarnir fylla síðan 8 liða úrslitakeppni, sem fram fer í Hvíta-Rússlandi.
Byrjunarlið Íslands:
Markvörður – Telma Ívarsdóttir
Miðverðir – Kolbrún Tinna Eyjólfsdóttir og Guðný Árnadóttir
Hægri bakvörður – Dröfn Einarsdóttir
Vinstri bakvörður – Saga Líf Sigurðardóttir
Miðjumenn – Kristín Dís Árnadóttir fyrirliði, Hlín Eiríksdóttir, Ásdís Halldórsdóttir
Hægri Kantur – Eva María Jónsdóttir
Vinstri kantur – Agla María Albertsdóttir
Framherji – Sólveig Jóhannesdóttir Larsen