A kvenna í 20. sæti á FIFA-listanum
A landslið kvenna er í 20. sæti á nýútgefnum styrkleikalista FIFA, þeim fyrsta sem gefinn er ú á árinu 2016, en listinn er gefinn út ársfjórðungslega. Íslenska liðið fellur um eitt sæti frá því listinn var síðast gefinn út. Bandaríkin eru í efsta sæti listans og Kanada kemur inn á top 10 á kostnað Noregs.