Vilhjálmur Alvar dæmir í Ungverjalandi
Þann 24. mars mætast Ungverjar og Ísraelar í undankeppni EM U21 landsliða karla á Gyirmóti Stadion, í Gyor í Ungverjalandi. Dómarar leiksins koma frá Íslandi og verður það Vilhjálmur Alvar Þórarinsson sem verður með flautuna. Um er að ræða lykilleik í riðlinum fyrir bæði lið, ætli þau sér að taka þátt í baráttunni um sæti í úrslitakeppninni, þannig að hinn íslenski dómarakvartett á von á hörkuleik.
Dómarateymið er þannig skipað:
Dómari | Vilhjálmur Alvar Þórarinsson (ISL) |
Aðstoðardómari 1 | Gylfi Már Sigurðsson (ISL) |
Aðstoðardómari 2 | Jóhann Gunnar Guðmundsson (ISL) |
4. dómari | Þorvaldur Árnason (ISL) |
Dómaraeftirlitsmaður UEFA | Michael Argyrou (CYP) |