U21 karla – Hópurinn sem mætir Makedóníu
Eyjólfur Sverrisson, landsliðsþjálfari U21 landsliðs karla, hefur valið hópinn sem mætir Makedóníu í Skopje 24. mars í undankeppni EM15/17.
Íslenska liðið er sem stendur á toppi riðilsins með 11 stig en Frakkar koma næst með 10 stig og svo Makedónía með 7 stig. Íslenska liðið leikur ekki aftur fyrr en í september í riðlinum eftir leikinn við Makedóníu.