Hæfileikamótun N1 og KSÍ fyrir Vesturland
Hæfileikamótun N1 og KSÍ fyrir Vesturland verður þriðjudaginn 8. mars á Akranesi. Það er Halldór Björnsson sem fer fyrir verkefninu.
Æfingarnar eru fyrir bæði stelpur og stráka sem eru fædd 2002 og 2003.
Dagskrá heimsóknar á Vesturland:
- Þriðjudagurinn 8.mars.
- 16:00 - Æfing með stúlkum.
- 17:30 - Æfing með drengjum.
Helstu markmið hæfileikamótunar KSÍ eru að:
- Fjölga þeim leikmönnum sem fylgst er með.
- Fylgjast með yngri leikmönnum en áður og undirbúa þá fyrir hefðbundnar landsliðsæfingar.
- Koma til móts við minni staði á landsbyggðinni og mæta þeirra þörfum.
- Koma til móts við leikmenn stærri félaga á höfuðborgarsvæðinu sem að öllu jöfnu væru ekki valdir á landsliðsæfingar.
- Bæta samskipti við aðildarfélögin og kynna fyrir þeim stefnu KSÍ í landsliðsmálum.
- Undirbúa leikmenn enn betur til þess að mæta á landsliðsæfingar seinna með fræðslu.