FIFA birtir lista yfir dómara á Algarve-mótinu
FIFA hefur birt lista yfir þá dómara sem dæma á Algarve-mótinu sem fram fer í Portúgal daganna 2. – 9. mars en kvennalandsliðið leikur á mótinu.
Dómarar mótsins koma frá 18 löndum en meðal þeirra eru dómarar sem þykja líklegir til að dæma á heimsmeistaramótum U17 og U20 kvenna sem fram fara á árinu.
Íslenska liðið hefur leik gegn Belgíu þann 2. mars, næsti leikur er gegn Danmörku þann 4. mars og seinasti leikurinn í riðlinum er gegn Kanada þann 7. mars. Eftir það taka við leikir um sæti.