Stjarnan fær Kvennabikarinn 2015
Það var Stjarrnan sem hlaut Kvennabikarinn fyrir árið 2015 en það eru verðlaun fyrir háttvísi í Pepsi-deild kvenna. Verðlaunin voru veitt á 70. ársþingi KSÍ sem haldið er á Hótel Nordica Reykjavík. Þá fengu Hamrarnir viðurkenningu fyrir prúðmannlega framkomu í 1. deild kvenna á síðasta tímabili.
Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ, afhenti félögunum verðlaunin.