Breiðablik og Víkingur Ólafsvík fá Dragostytturnar
Breiðablik og Víkingur Ólafsvík fengu Dragostytturnar á 70. ársþingi KSÍ sem haldið er Hótel Nordica Reykjavík. Þá fengu KV, KFS og Kóngarnir viðurkenningar fyrir prúðmannlegan leik í 2., 3. og 4. deild karla. Það var formaður KSÍ, Geir Þorsteinsson, sem afhenti fulltrúum félaganna viðurkenninguna.
Drago stytturnar hljóta þau lið í efstu tveimur deildum karla, sem sýna prúðmannlegastan leik miðað við gul og rauð spjöld dómaranna. Í Pepsi-deild karla er einnig tekið tillit til háttvísismats eftirlitsmanna KSÍ. Þá eru veittar sérstakar viðurkenningar í 2., 3. og 4. deild karla og er stuðst við sömu forsendur og í 1. deild karla.