Námskeið fyrir dómara þriðjudaginn 16. febrúar
Námskeið fyrir dómara verður haldið í höfuðstöðvum KSÍ, þriðjudaginn 16. febrúar kl. 18:00.
Kristinn Jakobsson, reyndasti FIFA dómari Íslands, mun kenna á námskeiðinu. Aðaláherslan verður lögð á ,, að lesa leikinn og leikstjórn‘‘. Auk þess geta þátttakendur spurt Kristin spjörunum úr um hin ýmsu efni sem tengjast dómgæslunni.
Áætlað er að námskeiðið standi yfir í tvær klukkustundir. Námskeiðið er ætlað öllum starfandi dómurum sem áhuga hafa á því að bæta sig í starfi.
Skráning er hafin á magnus@ksi.is